Öryggi og persónuvernd

 

Þegar þú notar vef Endurmenntunar atvinnubílstjóra ehf., akstur.is, verða til upplýsingar um heimsóknina.

 

Endurmenntun atvinnubílstjóra ehf (akstur.is) notar vafrakökur (e. cookies) sem eru litlar textaskrár geymdar á tölvu notandans. Vafrakökurnar eru notaðar til að fá upplýsingar um heimsóknir á vefinn. Endurmenntun atvinnubílstjóra ehf. notar Google Analytics til vefmælinga. Við hverja komu inn á vefinn eru nokkur atriði skráð, svo sem tími og dagsetning, leitarorð, frá hvaða vef er komið og gerð vafra og stýrikerfis. Þessar upplýsingar má nota við endurbætur á vefnum og þróun hans, t.d. um það efni sem notendur sækjast mest eftir og fleira. Meðhöndlun upplýsinga í vefkökum Google er háð reglum Google um persónuvernd.

 

Þegar nemandi skráir sig á námskeið Endurmenntunar atvinnubílstjóra ehf. er safnað saman upplýsingum um nemandann. Þegar nemandi lýkur námskeiði miðlar Endurmenntun atvinnubílstjóra ehf. þessum upplýsingum til Samgöngustofu sem hluta af upplýsingum til staðfestingar um að nemandi hafi lokið námskeiði en upplýsingunum er ekki miðlað til annarra aðila nema samkvæmt lagaskyldu til eftirlitsaðila.

 

Vefurinn notast við SSL-skilríki sem þýðir að öll samskipti eru yfir dulritað burðarlag. Það gerir gagnaflutning í gegnum hann öruggari. SSL skilríki varna því að óprúttnir aðilar komist yfir gögn sem send eru í gegnum vefinn, eins og t.d. lykilorð. Með skilríkjunum eru upplýsingar sem sendar eru milli notenda vefmiðlara dulkóðaðar og gögnin sem flutt eru á milli skila sér á réttan stað á öruggan máta.


Þessi síða notar vefkökur.
Sjá nánar